Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir

Hér að neðan má sjá algengar spurningar og upplýsingar um ýmislegt sem við kemur leikskólanum og starfsemi hans.



Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 

 

Nauðsynlegt er að börnin hafi með sér aukaföt í leikskólann og fatnað til útiveru með tilliti til veðurs. Æskilegt er að merkja fatnað barnanna. Athugið að losa hólfin í fataklefa á föstudögum.

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Ef barn er veikt eða með smitsjúkdóm á það að vera heima. Vinsamlegast tilkynnið forföll, mæti barn ekki í leikskólann. Veikist barn eða slasist í leikskólanum eru foreldrar látnir vita og er þá ætlast til að það sé sótt. Látið því vita ef símanúmer breytast. Leikskólinn greiðir fyrir fyrstu læknishjálp, slasist barn í leikskólanum.

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Í Hálsakoti er „Gullaskápur” sem geymir ýmsa fallega muni. Þegar barn á afmæli fær það að velja sér úr skápnum diska og borðskraut til að skreyta matarborðið með. Það fær afmæliskórónu, að vera umsjónamaður í matartímum, að velja bók í sögustund og leiki.

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Æskilegt er að foreldrar komi ekki með lyf fyrir börnin í leikskólann, nema nauðsynlegt sé. Ef ekki er hjá því komist, afhendið þá starfsmanni lyfið.

 


Viðburðir

20.09.'10
Skipulagsdagur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hálsakot | Hálsasel 29 | 109 Reykjavík | Sími: 557-7275 | Póstur | Viðburðir | Fréttir