Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir

Hér að neðan má finna ýmsar útskýringar á því starfi sem fram fer í leikskólanum.



Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 30 apríl 2008 22:15

Hlutverkaleikur er mikilvægur fyrir alhliða þroska barna. Hann eflir tilfinningaþroska, félagsþroska og málþroska. Þarna reynir á samskiptahæfni barnanna, að setja sig í spor annarra og líkja eftir heimi hinna fullorðnu. Auk þess fær hugmyndaflug þeirra og sköpunargleði notið sín. Í hlutverkaleiknum hafa börnin til umráða holukubba sem eru stórir kubbar úr við sem gefa mikla möguleika á að byggja alls konar umhverfi kringum hlutverkaleikinn.

Síðast uppfærsla: miðvikudagur, 30 apríl 2008 22:20
 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 30 apríl 2008 22:12

Á þessu svæði eru staðsettir sérstakir einingakubbar til þess að byggja úr (Unit blocks). Í kubbaleik bjóðast barninu ýmsir félagslegir kostir. Það getur byggt eitt eða unnið með öðrum, verið hluti af litlum hóp innan stærri hóps o.s.frv. Það rannsakar efniviðinn og kannar notkunarmöguleika hans. Börnin læra flokkun og hugtök, hver kubbur hefur ákveðna stærð, þykkt, lengd og breidd. Margvíslegir eiginleikar kubbanna stuðla að því að börn kynnast möguleikum þeirra. Þetta er undirstaða stærðfræðiþekkingar.

Síðast uppfærsla: miðvikudagur, 30 apríl 2008 22:20
 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 12 apríl 2004 11:54

Þar sem deildirnar eru aldursblandaðar gefur hópastarfið okkur aukið tækifæri til þess að halda utan um ákveðna þroskaþætti hjá börnunum. Stærð hópa er mismunandi frá ári til árs. Í yngri hópunum eru 5 – 8 börn og einn starfsmaður en í elsta hópnum eru allt að 16 börn og eru þá tveir leikskólakennarar með hann. Hver hópur er nefndur eftir ákveðnum lit en ekki aldri barnanna. Gerir það okkur auðveldara að finna hóp sem hæfir hverju barni hvað varðar þroska, óháð fæðingarári. Að öðru leyti er Guli hópurinn fyrir tveggja ára börn, Rauði hópurinn þriggja ára, Græni hópurinn fjögurra ára og Appelsínuguli hópurinn fimm ára. Öll börn fá tónlist og hreyfistund einu sinni í viku. Elstu börnin fá verkefnastund tvisvar í viku og þau næst elstu einu sinni í viku.

Síðast uppfærsla: miðvikudagur, 30 apríl 2008 22:17
 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 12 apríl 2007 12:01

Könnunarleikur er leikjaaðferð fyrir yngstu börnin í leikskólanum, „heuristic play with objects”, sem hefur verið þýtt með hugtakinu könnunarleikur. Í stuttu máli þá felst könnunarleikur í að bjóða hópi barna aðgang að miklum fjölda ólíkra hluta sem þau leika sér með án íhlutunar fullorðinna í stuttan tíma (40 - 60 mínútur) á skipulögðu afmörkuðu svæði. Eins og nafnið bendir til, kanna börnin möguleika hlutanna, enda vísar orðið „heuristic” til leitar og einhvers sem getur leitt þig áfram til aukinnar þekkingar. Að rannsaka, að uppgötva nýja möguleika/lausnir, að velja og hafna, skoða hvað er líkt og ólíkt – hvað á saman, gerir tilraunir, hvað heldur jafnvægi, auka einbeitingu

 

Markmið:

 
Síðast uppfærsla: miðvikudagur, 20 ágúst 2008 16:42
Lesa meira...
 


Viðburðir

20.09.'10
Skipulagsdagur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hálsakot | Hálsasel 29 | 109 Reykjavík | Sími: 557-7275 | Póstur | Viðburðir | Fréttir