|
opið hús |
|
|
mánudagur, 15 mars 2010 16:24 |
|
Opið hús
Þriðjudaginn 20 apríl verður opið hús í Hálskoti frá kl. 15:00 - 17:00.
Við viljum bjóða foreldra og aðra gesti velkomna að kynna sér starf leikskólans og skoða verk barnanna.
Að þessu sinni tengjum við opið hús við Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar sem verður vikuna 19. - 25. apríl. |
|
|
Skipulagsdagur |
|
|
mánudagur, 15 mars 2010 16:03 |
|
Skipulagsdagur 6. apríl 2010
Þriðjudaginn 6. apríl 2010 verður skipulagsdagur hálfan daginn f.h.
Hálsakot opnar kl 12:30 þennan dag. |
|
Bolludagur, sprengidagur og öskudagur |
|
|
föstudagur, 12 febrúar 2010 14:21 |
|
Kæru foreldrar
Nú líður senn að bolludegi, sprengidegi og öskudegi og þá bregðum við á leik í Hálsakoti.
Bolludagur 15 febrúar
Það verða fiskibollur í hádegismatinn og brauðbollur og rjómabollur í síðdegishressingunni.
Sprengidagur 16 febrúar
Að sjálfsögðu verður saltkjöt og baunir á borðum.
Öskudagur 17 febrúar
Við höldum furðufataball og sláum "köttinn" úr tunnunni. Börn og starfsfólk klæðast furðufötum. Skemmtunin hefst kl 10:00 en auðvitað er venjulegur leikskóladagur þennan dag. Elstu börnin fara í Seljahlíð og syngja fyrir heimilisfólkið þar. |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 2 af 11 |