Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Fréttabréf Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 18 febrúar 2009 11:13

Kæru foreldrar

Nú líður senn að bolludegi, sprengidegi og öskudegi og þá bregðum við á leik í Hálsakoti.

Bolludagur 23.febrúar

Það verða fiskibollur í hádegismatinn og brauðbollur og rjómabollur í síðdegishressingunni.

Sprengidagur 24.febrúar

Að sjálfsögðu verður saltkjöt og baunir á borðum.

Öskudagur 25.febrúar

Við höldum furðufataball og sláum "köttinn" úr tunnunni. Börn og starfsfólk klæðast furðufötum. Skemmtunin hefst kl.10:00 en auðvitað er venjulegur leikskóladagur þennan dag. Elstu börnin fara í Seljahlíð og syngja fyrir heimilisfólkið þar.

 

Lesa meira...
 
Foreldrakönnun Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 12 febrúar 2009 16:18

Foreldrakönnun Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar

Kæru foreldrar

Dagana 9. -13. febrúar 2009 verður send foreldrakönnun til allra foreldra leikskólabarna í Reykjavík.

Könnunin fer fram á netinu og ykkur mun berast beiðni um þátttöku með tölvupósti.

Skoðanir ykkar eru mikilvægar fyrir starfsemi leikskóla og viljum við hvetja ykkur til að svara þegar könnunin berst.

Kær kveðja og von um góða þátttöku frá Hálsakoti

Inga Dóra Jónsdóttir leikskólastjóri

 
Sumarlokun sumarið 2009 Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 12 febrúar 2009 16:11

Sumarlokun í Hálsakoti sumarið 2009

Kæru foreldrar

Í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu og í samráði við foreldraráð leikskólans hefur verið ákveðið að loka leikskólanum í fjórar vikur vegna sumarleyfa. Lokað verður frá 13. júlí - 7.ágúst, báðir dagar meðtaldir. Lokunartíminn ákvarðast með tilliti til niðurstaðna foreldrakannana síðustu ára.

Kær kveðja Inga Dóra Jonsdóttir leikskólastjóri

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 9 af 11

Viðburðir

20.09.'10
Skipulagsdagur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hálsakot | Hálsasel 29 | 109 Reykjavík | Sími: 557-7275 | Póstur | Viðburðir | Fréttir