Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Fréttir Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 11 júní 2009 14:41

 

Sumarhátíð

Þriðjudaginn 16. júní höldum við okkar árlegu sumarhátíð í tengslum við þjóðhátíðardaginn.

Með þessari hátíð vekjum við þjóðarvitund barnanna og fræðum þau um fánann okkar og lýðveldisdaginn.

Hátíðin hefst kl. 10:30 með skrúðgöngu frá Hálsakoti og Hálsaborg undir lúðrablæstri. Við Seljahlíð höfum við stutta viðdvöl og syngjum með heimilisfólkinu. Eftir gönguna heldur hver leikskóli hátíð í sínum garði þar sem farið verður í leiki og boðið verður upp á pylsur.

Að lokinni skrúðgöngu munu fulltrúar Landverndar afhenda okkur í Hálsakoti Grænfánann í þriðja sinn u.þ.b. kl. 11:30.

Gaman væri að allir kæmu í  einhverju grænu í tilefni dagsins.

 

 alt     alt     alt     alt

 
Fréttir Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 13 maí 2009 11:06

Sinfóníutónleikar

Elstu börnum í leikskólum Reykjavíkur er boðið á sinfóníutónleika föstudaginn 15. maí kl. 9:30.  Á efnisskrá er tónverkið um Maxímús Músíkús.  Hægt er að fara inn á heimasíðuna  www.sinfonia.is  undir Maxímús Músíkús og sækja sér lagið hans Maxa.

Farið verður með rútu frá Hálsakoti kl. 8:40.

 
Fréttir Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 13 maí 2009 10:59

Hópaslit

Hópaslit verða fimmtudaginn 14. maí.  Hópaslit hjá gulu, rauðu og grænuhópunum verða kl. 10:00 um morguninn en appelsínuguluhóparnir verða kl.16:00.  Foreldrum barna í appelsínuguluhópunum er boðið að vera viðstödd hópaslita hjá þeim.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 11

Viðburðir

20.09.'10
Skipulagsdagur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hálsakot | Hálsasel 29 | 109 Reykjavík | Sími: 557-7275 | Póstur | Viðburðir | Fréttir