Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Velkomin úr sumarleyfi Prenta
Almennar fréttir
föstudagur, 14 ágúst 2009 14:35

Velkomin úr sumarleyfi

Vonandi hafa allir haft það gott og notið sumarsins.  Þessa dagana eru börn og starfsfólk að koma úr sumarleyfi. Næstu daga og vikur notum við til þess að aðlaga ný börn og færa börn af yngri deildum yfir á eldri deildar.  Verið er að skipuleggja vetrarstarfið sem hefst um miðjan september.

 

 
Að njóta og upplifa Prenta
Almennar fréttir
föstudagur, 03 júlí 2009 14:53

Kæru foreldrar og börn

Nú styttist óðum í sumarfríið okkar og vonandi eigum við öll langa og sólríka sumardaga í vændum.

Að njóta og upplifa

Ef þið eigið leið um fjörur, holt og hæðir eða hvar sem þið eruð að njóta og upplifa langar okkur að biðja ykkur um að hvetja barnið ykkar til að safna nokkrum steinum, skeljum eða einhverju öðru og koma með í leikskólann eftir frí. Það væri líka frábært að fá mynd af barninu og staðnum og ekki myndi nú skemma fyrir að fá litla frásögn með. Þetta er svo góð og eftirsóknarverð leið til að auðga grænfánaverkefnið okkar og eykur fjölbreytni og skemmtilegheit í leikskólastarfinu. Við viljum alls ekki að þetta verði nein fyrirhöfn, bara að nota augnablikið þegar þið eruð einhvers staðar úti við.

Við þurfum að nýta okkur undrun barnsins.

Með góðum sumarkveðjum frá starfsfólkinu í Hálsakoti.

 
Jónsmessuhátíð Prenta
Almennar fréttir
föstudagur, 12 júní 2009 11:12

Jónsmessuhátíð

Hálsakot tekur þátt í Jónsmessuhátíð þriggja leikskóla föstudaginn 19. júní sem haldin verður í leikskólanum Steinahlíð ásamt leikskólanum Fálkaborg. Þá ætla börn og starfsfólk Gleym mér ei-  leikskólanna en það eru samtök leikskóla í Reykjavík sem hafa leyfi til að flagga Grænfánanum að hittast í garðinum í Steinahlíð og eiga saman góðan dag. Við förum í leiki, syngjum saman og grillum. Hátíðin verður frá kl.10:00 - 14:00. Börnin sem fædd eru 2003 - 2004 taka þátt i hátíðinni og fara með rútu frá Hálsakoti.

 

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 6 af 11

Viðburðir

20.09.'10
Skipulagsdagur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hálsakot | Hálsasel 29 | 109 Reykjavík | Sími: 557-7275 | Póstur | Viðburðir | Fréttir