Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Hátið í tengslum við þjóðhátíð Prenta
föstudagur, 11 júní 2010 11:02

 

 alt

 

 

Miðvikudaginn 16. júní 2010 ætlum við að halda okkar árlegu hátíð
í tengslum við þjóðhátíðardaginn.
Með þessari hátíð vekjum við þjóðarvitund barnanna og
fræðum þau um fánann okkar og lýðveldisdaginn.
Farið verður í skrúðgöngu með leikskólunum í hverfinu og
byrjar hún kl:10:30  frá Hálsakoti og Hálsaborg undir lúðrablæstri. 
Við Seljahlíð höfum við  stutta viðdvöl og syngjum með heimilisfólkinu.
 
Eftir gönguna heldur hver leikskóli hátíð í sínum garði
þar sem farið verður í leiki og boðið verður upp á pylsur  
 
Skrúðgönguleið
Gengið verður frá bifreiðastæðinu við Hálsakot/Hálsaborg að göngustíg við enda Flúðasels,
niður hann framhjá Seljaskóla og að Seljahlíð, kringum tjörnina.
  
Foreldrar og systkini eru velkomin.
Ef systkini koma með verða þau að vera í fylgd með fullorðnum. 
 
Skipulagsdagur Prenta
fimmtudagur, 15 apríl 2010 13:59

Skipulagsdagur

Skipulagsdagur verður 4. maí 2010 Hálsakot verður lokað allan daginn.

 
opið hús Prenta
mánudagur, 15 mars 2010 16:24

Opið hús

 Þriðjudaginn 20 apríl verður opið hús í Hálskoti frá kl. 15:00 - 17:00.

Við viljum bjóða foreldra og aðra gesti velkomna að kynna sér starf leikskólans og skoða verk barnanna.

Að þessu sinni tengjum við opið hús við Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar sem verður vikuna 19. - 25. apríl.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 11

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hálsakot | Hálsasel 29 | 109 Reykjavík | Sími: 557-7275 | Póstur | Viðburðir | Fréttir